23.2.15
Ég er takki
(Krakki)
Ég er barn. Þú ert fullorðin. Arnav er takki. Leela er stelpa.
Þetta er það sem er að brjótast um hjá Eddu þessa dagana.
Sóleig er farin að labba bara nokkuð vel. Hún gaf mér líka ís úr diner-num. Það þarf að setja ískúlu í ísbrauð. Hún gerði þetta og rétti mér. Er búin að fatta að þetta er nokkuð sem börn gera. Gefa foreldrum sínum ís.
Um daginn vildi Edda fá ís í eftirmat en ég bauð henni smá kökusneið í staðin. Síðan þegar hún er komin upp í rúm þá vildi hún fá að heyra þrjár sögur. Söguna um stelpuna sem vildi ís. Söguna um stelpuna sem vildi ekki köku. Og síðast en ekki síst, söguna um stelpuna sem vildi horfa á sjónvarpið.
Það er ekkert smá magnað að eiga börn. Það er eitthvað svo basic. Jarðtengir mann. Þetta snýst svo mikið um frumþarfir en síðan eru þau svo einlæg og yndisleg.
Ég vil vera hjá mömmu minni og pabba - þetta sagði Edda við afa sinn í morgun.

9.2.15
Litla barnið er 3 ára í dag
Við vorum með afmæli á laugardaginn fyrir skólavinina og á sunnudaginn fyrir Íslensku vinina auk þess sem við fórum í afmæli til eins félaga úr skólanum eldsnemma á sunnudeginum svo mér fannst við ekki geta innbyrt meira afmælisstúss. Edda söng afmælissönginn fyrir sig allan daginn og við fengum okkur súkkulaði köku og mjólk og það er nú eitthvað. Fórum náttúrulega öll fjölskyldan í skólann í afmæli sem var í skólanum. Við sýndum börnunum myndir af Eddu frá því hún fæddist, lásum Elmo bókina og Flýttu þér Einar Áskell. Þetta féll allt í góðan jarðveg. Hérna er vídjó af afmælissöngnum.
Afmælisveislurnar voru ljómandi góðar. Ég var búin að vera að stressa mig yfir þeim í mánuð allavegana. Veislurnar sem okkur er boðið í eru mjög glæsilegar. Ég var farin að hugsa að við yrðum að leigja sal og vera með einhverja geðveiki en síðan komumst við að þeirri niðurstöðu að það væri bara í lagi að bjóða þremur börnum úr hvorum hópnum og það var mjög fínt. Edda var í skýjunum og það var líka huggulegt fyrir foreldrana. Íslendingakaffið var geggjað notalegt líka.
Litla skinnið var búið að hlakka svo til afmælis síns. Og núna er hún búin að eiga stórkostlegt þriggja daga afmæli. Ég verð samt ekkert hissa ef það endar í svaka spennufalli á morgun þegar hún á alls ekki lengur afmæli. Hún er búin að vera að segja "ég á ennþá afmæli".