24.4.12

Social

Við fjölskyldan erum með alveg max í social þessa dagana.  Við Edda erum búnar að eignast vinkonur.  Sofia og mamma hennar Erica.  Hún spekulerar í veðurfarsbreytingum og maðurinn hennar er stærðfræðingur með áhuga á fjármálum.  Svo við eigum ýmislegt sameiginlegt.  Fribba og Gústi voru hér í NYC og við fórum út að borða með þeim á Indverskan stað sem eldar kínverskan mat eins og Indverjum þykir gott. Það var áhugavert.  Annar Gústi kom líka við og við fórum með honum á indverskan stað sem eldar indverskan mat.  Síðan erum við af og til að chilla með ljósunni okkar.  Það finnst okkur gaman.

Edda stækkar og stækkar.  Hún er á við 6 mánaða gamalt franskt barn en 3 mánaða íslenskt.  Hún lærir eitthvað nýtt á hverjum degi.  Núna er hún búin að uppgötva hendur og notar þær óspart til að kanna umhverfi sitt eins og skeggið á pabba sínum og brjóstið á mömmu sinni.  Hún á líka uppáhaldsdót.  Það er tuskudúkkan kötturinn með höttinn.  Annars fékk hún nýja dúkku sem bæði lýsist upp og spilar lög og hún virðist óðum vera að verða næsta uppáhalds dótið.







9.4.12

Tveggja mánaða

Það er afmæli liggur við annan hvern dag þegar maður er svona lítill. Edda er 2 mánaða í dag og það er yndislegt. Það var ekki mikið um hátíðahöld en Edda fór samt í kjól og peysu í stíl. Voða fínt fjólublátt dress frá Jóhönnu. Við fórum að hitta ljósuna okkar og hún hrópaði upp yfir sig vá hvað barnið er orðið risa stórt! En við hittumst fyrir tvem vikum og síðan þá hefur hún þyngst um kíló.

Það er alveg bilað að vera með barn á brjósti. Ég borða og borða en léttist og grennist. Frekar gott. Allavegana í nútímasamfélagi þar sem mun auðveldara er að þyngjast en léttast. Það er líka skrýtið að vera lifibrauð annarar manneskju og að þurfa að deila líkamanum svona með fjölskyldunni (Eddu). Líffræði er svo merkileg.

3.4.12

Páskakjullar


Edda á svaka sætan gulan jakka og skó í stíl.  Svo sætt.  Og hlýtt.  Dagurinn í dag var frekar ómögulegur því ég svaf bara í 4 klukkutíma og það finnst mér alveg vonlaust.  Samar kom í smá heimsókn og færði mér sellerírótarsúpu sem ég borðaði á nóinu.  Það var frábært.  Hann vildi fá að vita hvernig maður bakar brauð.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?