28.5.15

Gleðilegan túrdag

Ég hef aldrei verið jafn ánægð með að byrja á túr en á sjálfum alþjóðlegum degi túrsins. Fyrir utan að vera dauðfegin að vera ekki ólétt finn ég hjá mér hugarfarsbreytingu í garð þessa tímabils mánaðarins þegar líningin í leginu mínu brotnar niður. 

Mér finnst ekkert smá merkilegt að allar stelpur, meira og minna, sem ná unglingsaldri byrja á túr og eru með blæðingar einu sinni i mánuði i um 30, 40 ár. Og samt er þetta feimnismál, áhyggjumál og allskonar önnur mál sem eru allur skalinn af vandamálum. 

Á vesturlöndum búa konur við það að vera hvattar til að setja mis eitraðar plastvörur á milli lappanna. Meðan í öðrum heimshornum búa stelpur við þann raunveruleika að geta ekki mætt í skólann vegna ranghugmynda um tíðahringinn. Í nafni guðs mega sumar konur ekki elda meðan þær eru á túr. 

Svo það er full ástæða til að hafa alþjóðlegan túr dag til að reyna að bæta úr þessum ruglingi.  

10.5.15

Oxford

Ég fór í mína fyrstu vinnuferð sem freelance scientist til Oxford á Bretlandseyjum.  Það var geggjað.  Í allskonar víddum.  Það var gott að fá frí frá börnunum mínum og það var gott að spá í vísindum aftur.  Ég var alveg í nokkra daga að jafna mig áður en ég gat slakað á í þessu nýja hlutverki og síðan fór ég aftur til NY.  En við áorkuðum ýmsu og fengum eina góða hugmynd sem var hjálplegt.  Ég skoðaði mig aðeins um í Oxford, fór m.a. í túr um Bodlian Library sem er um 500 ára gamalt bókasafn.   Þessi bær er engum líkur.  Mér finnst eiginlega hálf ótrúlegt að hann skuli vera til.






This page is powered by Blogger. Isn't yours?