24.11.16

Indverskt brúðkaup

Við erum svo heppin að eiga svona góða fjölskyldu sem elskar okkur út fyrir skynsamleg mörk. Öll börnin eru á Íslandi meðan við hjónin njótum lífsins i Delhi, förum í brúðkaup... og erum andvaka á næturnar.

Á Indlandi sameinast fjölskyldur þegar fólk giftir sig og þessi fjögurra daga hátíð, brúðkaupið, snýst um að kynna fjölskyldunum hvorri fyrir annarri. Í kvöld var hátíð í húsi foreldrum Radhiku. Matur, dans og söngur sem allir tóku þátt í, ungir sem gamlir. Stórkostleg gleði og fíflalæti. Konur og menn skiptust á að kynna hópa, syngja viðeigandi lög, berja á trumbu og egga fólk til taka nokkur spor.  Bilað skemmtilegt og engin börn.  Þau voru öll skilin eftir heima.


15.11.16

Pólitískt uppnám.

Vá hvað þetta er fokkt opp.  Fólk er svo miður sín hérna það veit ekki hvernig það á að snúa sér.  Það er ekki lengur hægt að lesa new york times.  Maður treystir sér ekki til að hugsa um framtíðina.  Það skiptir engu hvað maður reynir að hugsa um, maður verður örvæntingafullur.  Meiri vandræðin.

Annars er allt ágætt af okkur að frétta.  Við stelpurnar vorum "einar heima" í síðustu viku því Óli var í NY að vinna.  Það gekk bara ágætlega.  Við höfðum það bara notalegt og gripum af og til í hvolpasveitina og Stubbana.  Á laugardaginn kom Óli og við skelltum okkur beint í bíó með Eddu.  Fyrsta skipti.  Fórum á TROLLS sem daman fílaði í botn þrátt fyrir að vera svo hrædd að hún gat ekki horft af og til.  Í gær fórum við á Peggy Notebaert safnið og skoðuðum nýju froskasýninguna.  Garðurinn í kringum safnið er heilt ævintýri og við gengum um hann og reyndum að taka mynd fyrir jólakortið.





Það gekk svona la la.  En á froska sýningunni gat maður líka orðið froskur og það fannst börnunum mjög skemmtilegt.  Enda eru þær algjörir froskar.

8.11.16

OMG

Ég er í svo miklum vandræðum með mig ég veit ekki hvernig ég á að snúa mér.  Sit bara fyrir framan skjáinn og hakka í mig halloween nammi.  Ég bara trúi því ekki að trump sé að vinna.  Trúi því ekki.  Þetta er ekki að gerast.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?