17.12.13
Litlu jólin
Hjá Eddu voru í dag. Hún fór í skólann voða fín í kjól með spennu. Þegar ég kom að taka þátt í hátíðarhöldunum var barnið bara á sokkabuxunum í nærbol. Þá var henni alltof heitt þar sem hún var að sjálfsögðu í tvöföldum nærbol - ullar og bómullar.
Hérna eru sætar myndir af okkur í sólinni. Fórum í Thanksgiving frí í Karabískahafið á fransk-hollenska eyju sem heitir St. Martin. Það var algjört æði.
Núna er jólaundirbúningurinn náttúrulega í fullum gír. Við buðum nokkrum kunningjum í jólaglögg um helgina og erum komin með jólatré. Fengum jólakort frá Eddu sem þær gerðu í leikskólanum með mynd af henni framaná. Fyndið en ég þekki varla dóttur mína á þessari mynd. Hún er með einhvern leikskólasvip sem ég hafði bara aldrei séð. Fyndið. Kannski brosir maður svona á spænsku. Þar heitir hún líka Eda. Ég sver það.

Comments:
<< Home
Krútt! Hvar er mynd af mömmunni, þer sjálfri? ;) Vona að jólin ykkar verði yndisleg. Jólakveðja, Lilja
Skrifa ummæli
<< Home