22.7.12

Óli farinn til Ameríku

En við mæðgur erum hér enn.  Það er svakalega huggulegt hjá okkur.  Edda sefur í vagninum og ég er að klára grein.  Alltaf sama sagan.  Síðan viljum við líka hitta vini og vandamenn, knúsast í ömmunum og langömmu.  Borða fisk.  Nammi namm.  Eitthvað þannig.


Þetta er passamyndin af Ameríkananum okkar.  Það lukkaðist að lokum að fá vegabréf fyrir hana.  Held ég allavegana.  Má sækja það eftir viku, kannski tvær.

Comments:
Er vegabréfið ekki nokkurn vegin svona?

Nafn:
(Noname) Edda Oladottir
Augu:
Risastór og blá - bræða hjörtu
Hæð:
Smaábarnastærð
Annað:
Eitt stykki krúttípútt í millilandaflugi, getur orðið pirruð þegar hún er svöng.
 
Hei Tinna! Hvað verðið þið mæðgur lengi á landinu? Ég kem 1. ágúst og það væri gaman að hittast ef þið verðið enn á Íslandi. xVala
 
Ha ha, jú ég held það.

Við verðum hérna til 24. ágúst. Hlakka til að sjá þig Vala!
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?