8.11.06

Að skrifa ljóð
er ekkert mál
maður tekur bara sálina
og hellir

Misjafnt gengur mönnum
að tjá sig um tilfinningar,
ausa úr skálum spekúlasjóna
kallast við mann og annan

ég skil ekki þennan leik
sem lífið og tilveran er
hvað á maður að gera
og hver vinnur

Eru einhver lið
eða er maður einn á báti
er betra að vera góður
eða á maður að hjálpa til

Getur maður fengið stig
eða er þetta staðist/fallið
eru engar reglur
eða er búið að týna þeim?

Comments:
Ég held barasta að þú getir snúið þér að ljóðlist ef allt annað klikkar ;)
 
Bravo !
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?