7.3.19

Ásta öfugsnúna

Hú ha.  Litla barninu finnst ekkert skemmtilegra í öllum heiminum en að setja buxur á höfuðið, sokka á eyrun, peysur á fótleggina etc etc etc.  Í morgun vaknaði hún klukkan hálf sex vegna þess að einhver hafði tekið ísinn hennar.  Litli anginn dreymdi að hún væri að borða ís. 

Óli er í Evrópu og við höfum það bara nokkuð gott.  Við fórum í ferð til Oak Park um helgina og skemmtum okkur svaka vel á róló, bókasafninu og í sushi veislu með vinum okkar.  Síðan fórum við í Kaþólska messu og sáum altarisbörn og lítið barn sem verið var að skíra.  Við Sólveig og Ásta fórum í afmæli en Edda var hjá Gail að stússa.



This page is powered by Blogger. Isn't yours?