9.10.18
Tinna vísindamaður
Ég er í nýju vinnunni minni sem er við Georgíu háskóla í Aþenu hérna í Bandaríkjunum. Þetta er algjör draumur. Ég elska að vera vísindamaður og ég dýrka að vera hérna í þessum risa háskóla að reyna að leysa heimsins mál. Þeas. eitt lítið mál. Í dag var ég með svaka góðan fund með yfirmanninum þar sem við skipulögðum greinina sem við erum að fara að skrifa og hvað þarf að gera við kóðann í framhaldinu. Hann talar um líkanið mitt sem big software sem ég er bara alveg sátt við.
Hér eru allskonar skilaboð um hvað er mikilvægt. Mér finn mig alveg í þessu.
Börnin eru í góðu yfirlæti hjá pabba sínum og ömmu. Elsku dúllurnar voru reyndar með magakveisu þegar ég fór en þær hristu hana af sér. Vonandi fæ ég að sjá þær á morgun en það er stormur aðvífandi svo það á enn eftir að koma í ljós.