23.4.16

Litla Ásta

Er þannig sem Sólveig ávarpar Ástu.  Hún segir það svo sætt.  En barnið er orðið þriggja vikna og gott betur.  Hún er orðin meira athugul, horfir á mann, "segir" stundum eitthvað, eitthvað hjal.  Síðan er hún farin að sparka meira og hreyfa sig meira.  Systurnar eru jafn hugfangnar.  Bíbí er að dáta segir sú yngri þegar eitthvað heyrist í henni.  Síðan lesa þær fyrir hana og syngja.  Edda er búin að reyna að kenna henni sporin í dansinum sem hún er að læra.  Báðar vilja þær ólmar halda á henni.  Um leið og ég tek hana upp segir Sólveig "my turn" og sest bein í baki með útrétta handleggi.

Í dag var fyrsti dagurinn án aðstoðar.  Við lifðum þetta af.  Óli eldaði þrjár máltíðir.  Reyndar fúlsuðum við allar við hafragrautnum hans en hádegis og kvöldverðirnir voru mjög góðir.  Fiskisúpa, gratinerað hvítkál og pylsa.  Allir mjög ánægðir með þetta.  Sólveig vildi ekki lúra í hádeginu en sofnaði seinna í rólunni og stein svaf alla leiðina heim þó ég hafi rogaðist með hana á mjöðminni því ég var með Ástu á maganum.  Óli og Edda höfðu farið í verslunarleiðangur en nú erum við komin með plan til að panta af netinu mat því þriggja barna fjölskyldur bara ná ekki að kaupa sjálfar í matinn.

Comments:
Gaman að fylgjast með ykkur;) bið að heilsa ykkur elskurnar, knús
 
Líst vel á netinnkaup í matinn. Ég gerði það alltaf í Bretlandi og sakna þess mega mikið! Svo mikill tímasparnaður og miklu minni peningum eytt í handahófskenda vitleysu. Sakna þess mikið hér.

Bejios,
Silla
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?