12.2.16

Afmælisbarn



Afmælisbarnið að æfa sig að skrifa

"Ég fæ fyrst því ég er afmælisbarn" er búin að vera lykilsetningin hennar Eddu núna í örugglega tvær vikur.  Hún varð fjögurra ára á þriðjudaginn.  Á miðvikudaginn fór hún með treats í leikskólann.  Bollakökur sem ég keypti.  Goodie bag er líka alltaf með og ég var einhvern vegin ekki búin að undirbúa það svo ég stóð í klukkutíma, já og ráfaði fram og aftur, um einhverja mega föndur búð sem ég hugsaði með mér að ég hlyti að finna eitthvað í og var ég svo miklum vandræðum að ég missti næstum því vitið.  Það eru kannski 15 börn í bekknum, þetta á að vera eitthvað lítið.  Ég þoli ekki draslið sem kemur heim í þessum goodie bags, eitthvað plast rusl sem börnin leika með í 15 sekúndur og sælgæti.  En allt sem er eitthvað aðeins meira en rusl kostar alveg smá.  Ég fer ekki að eyða 200 dollurum í eitthvað sem á ekki að vera neitt.  Þetta er ekki einu sinni aðal veislan.  En ef það er eitthvað svaka lítið þá kostar það samt 3 dollara með pokanum sem gera alveg 50 dollara að minnsta minnsta kosti.  Síðan er ég búin að vera í þessari búð í eitthvað langan tíma og er að bilast yfir því að nota tímann í þetta, er samt ekki komin á niðurstöðu.  Drasl - ekki drasl.  Prinsessudót fyrir stelpurnar er ósanngjarnt fyrir strákana.  Þar fyrir utan er Edda ekki spennt fyrir prinsessum.  Plast, plast, plast.   Höfuðið á mér skrúfaðist næstum því af mér.


Í nýju peysunni frá Gíu ömmu

Aðal veislan er á sunnudaginn.  19 fullorðnir og 15 börn eru búin að melda sig.  OMG.  Við buðum bekknum hennar Eddu í afmælisveislu og það koma næstum því allir.  Ég er aðeins að fríka út yfir þessu.  Edda er mjög spennt fyrir því að hafa stóra veislu.  Stór veisla - margir krakkar.  Goodie bag er svaka flott litabók sem ég keypti með góðum fyrirvara á amazon.  Gleymdi reyndar að kaupa poka, svo ég þarf að reyna að redda því í dag.  Í einhverri mega-skrifstofubúð geri ég ráð fyrir.  Fyrir fullorðna fólkið verða beyglur og reyktur lax, smurostur, rauðlaukur og capers.  Kaffi náttúrulega.  Fyrir börnin eru líka beyglur, ávextir, bollakökur, djús og eða mjólk.  That´s it.  Ég er búin að leigja stóla og börn (borð:) fyrir börnin.  Búin að kaupa allt Diego dótið í party city.  Það verður föndur borð, pottaleikurinn og photo station.  Enginn trúður.  Það væri sennilega ekki á það bætandi fyrir barnið með þessa foreldra.  Mér finnst þetta pínu stressandi.  Við Edda erum búin að fara yfir prógrammið.  Þakka fyrir sig og setja gjöfina upp á hillu.  Það er mjög mikilvægt.  Hér er algjört faux pas að opna gjöfina meðan gestirnir eru viðstaddir.

Fjögurra ára.  Í Diego búningnum.


Comments:
en yndislegt blogg! Til hamingju með Eddu:) Það er allt hægt í Ameríku. Meira að segja að leigja börn;)
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?