16.6.15

Chicago

Við erum að flytja til Chicago.  Við vorum eitthvað að pæla að flytja og brainstormuðum svolítið um hvert.  Byrjuðum svona í næsta nágrenni: Brooklyn, Queens en síðan spáðum við í Hoboken þar sem Nicki Minage býr og síðan datt okkur Chicago í hug og það hljómaði vel útaf allskonar ástæðum svo nú erum við búin að fara í vettvangsferð og finna skóla fyrir börnin og ég er búin að pakka innbúinu í kassa.

Það er frekar stressandi að flytja.  Það þarf að hugsa fyrir svo mörgu á sama tíma.  Pakka náttúrulega.  Finna leigjanda fyrir íbúðina.  Það er reyndar kona að vinna í því.  Selja húsgögn.  Fara í gegnum dótið.  Athuga hvort megi losa sig við eitthvað.  Það má.  Mig vantar ökuskýrteini.  Er að pæla í að reyna að fá það á morgun.  Það er endalaust ársloka prógram í skólanum hennar Eddu.  Við þurfum að finna íbúð í Chicago.  Síðan eru nokkrir lausir endar sem ég nenni ekki að útlista.  Ætli þetta púslist ekki einhvern vegin saman.

Við erum allavegana að fara til Íslands á mánudaginn og það verður ágætt.  Ég er með bissnishugmynd sem ég er bilaðslega spennt fyrir.  Vantar saumakonu.

Comments:
like:)
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?