7.1.14

Svaka mikið frost í Ameríku

Það er kalt í NYC en ekki jafn kalt og í Chicago þar sem fólki er ráðlagt að fara ekki út vegna hættu á frostbiti.  Edda var því í vandræðum með að sofna í kerrunni sinni og þurfti ég að fara með hana inn vakandi.

Í fyrsta sinn þá steinsofnaði ég í "lúrnum" hennar Eddu meðan hún var glaðvakandi.  Síðan vakna ég við að hún hrasar er hún er að burðast með koppinn sinn fullan af nýpissuðu pissi sem skvettist upp í loft og lendir á gólfinu rétt við höfðagaflinn á rúminu þar sem ég svaf og rétt slapp við verstu leið til að vakna sem ég get gert mér í hugalund.

Bara smá myndbrot af hversdagslífinu hérna í New York, pre-barnapíu.

Comments:
Ok. Ég skellihló. Sorrí :) Dugleg dóttir þín. Knús til ykkar, Lilja.
 
Haha, þetta var frábær lýsing! Ég skellihló líka. Dugleg Edda að pissa í koppinn sinn, og heppin mamman að vakna í tæka tíð :)
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?