28.5.13
Sumar, eða þannig, á Íslandi
Ísland hlýtur að vera besta land í heimi því hér finnst manni frábært að vera þó svo veðrið sé súld og 4 gráður. Í lok mai. Við erum búin að búa á besta stað í bænum í nokkrar vikur og líkar það allvel. Við Edda löbbum í Fröken Laugu nær daglega og með pabba sínum labbar Edda á kaffifélagið og allir eru lukkulegir. Hér er líka hjól með barnastól á böglaberanum sem við höfum notað. Við erum rétt í 10 mínútur að hjóla í Hlíðarnar héðan. Eddu finnst ekkert smá gaman að sitja aftaná og sjá heiminn frá því sjónarhorni.
Um helgina fórum við í Grímsnesið í gamla bústaðinn hennar langömmu Rutar. Það var ljómandi gott þó svo að veðrið væri eins og greint var frá að ofan. Við grilluðum fillet og kótilettur, höfðum tza-tziki sósu og fínt salat. Við fengum góða gesti og fórum í sund. Betra gerist lífið varla.